10.3.2008 | 20:54
Þetta með að vera einn..........
Það vita allir hvernig er að vera ástfangin og allt rosa gaman, en hugsið ykkur að það er miklu meira ömurlegt að hætta sman heldur en hvað er gaman að byrja saman. Ég vona að þið fattið hvað ég er að fara. Eins og hvað það getur stundum verið gott að vera einn með sjálfum sér getur það líka verið ömurlegt, t.d þegar kemur að því að fara sofa, í stað þess að sofna út frá góðu spjalli þá hugsar maður of mikið og getur ekki sofnað. Ég er ekki að seigja að það að fara sofa saman sé eini plúsinn við að vera í sambandi. Þeir eru mjög margir. Til dæmis að koma heim í hreina íbúð, góðan mat, hrein föt og ég tala ekki um ef hún er búin að hita setuna og gera allt klárt fyrir að maður eigi samverustund með sjálfum sér. Þetta er allt svo æðislegt. En svo eru líka til gallar á samböndum. Það kemur stundum vond lykt þegar ég prumpa, og hvað með það. Jú það getur verið mikið með það. Og vitið þið hvernig? Þetta þróast úr umræðu um vonda lykt yfir í þegar maður faðmaði fullu stelpuna á útihátíð 2002 sem maður þekti þegar maður var í leikskóla. Hvernig umræðan um prumpið breytist yfir fullu stelpuna veit ég ekki. Kanski finna konur upp á þessum útursnúnig þegar við sofnum á undan þeim og þær geta ekki sofið fyrir hugsunum í sjálfum sér, eða þegar þær eru að kynda upp setuna fyrir okkur, eða bara meðan þær eru að tala við okkur, þær geta jú víst gert margt í einu. Ég veit svo sem ekki hvað ég er að þvaðra þetta, það er allavega ekki hægt að seigja að ég bloggi ekki,
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.3.2008 | 01:18
Ertu að grínast?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.2.2008 | 19:41
Þetta er búin að vera rosaleg helgi.
Já þetta er bara brot af því sem koma skal af myndum og videoum eftir þessa snildar helgi.
Þið finnið líka orðið video hér inni,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,eins og ég var víst búinn að koma inná.
Þetta er smá breingluð mynd en töff
Byrjaði að taka mynd við skálafell og endaði í átt að Skjaldbreið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2008 | 18:47
Ég læt undan vegna mikils þrýsting.
Já ég er að verða gamall. Eftir miklar fundarsetur með fjölskylduni varðandi að aldurinn sé að færast yfir hef ég látið undan og ætla að koma með smá lista yfir hvað mig kemur til með að langa í.
Tösku fyrir ALLT sleða og hjóladótið (Hjálm, brynju, hné hlífar og allt hitt draslið.
Nýja fartölvu.
Dúnsæng.
Hund.
Rúm.
GPS á sleðan.
Einbýlishús.
Hvítar íþróttabuxur.
Viljastyrk til að henda kettinum út.
Box skó, þið vitið þessa háu með þunna botninum.
Miða á Ladda dæmið.
klukku með 38 tímum í sólahring.
Freð til amsterdam.
Svört plöst á KTM-ið
Hettupeysur, eins og ykkur hafi ekki dottið það í hug.
FOKK ÆFING AÐ BYRJA VERÐ AÐ FARA.
P.S Box-hanska, hinir eru búnir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2008 | 14:39
Ég skil mömmu vel að hún vilji rassskella mig.
Hæ ég hérna. mig langaði bara að deila því með ykkur að ég var að fá nýtt dót.Já strákurinn fékk Arctic Cat M1000 sem er flaggskipið frá AC og auðvita var stax byrjað að taka á því.
Og svo var maður svo goður að leifa frænda að taka gamla.
Og það sást munur strax hvað er svakalegur munur á þeim, það er að seigja sleðunum..........................................og kanski pínu á frændunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.12.2007 | 15:32
Já börnin góð svona eru jólin!!!!
Já hvað er betra en að nota jóladag í að leifa græna ógeðinu að anda hressilega.
Svona geta konur og karlar verið yndisleg. Hún Rebekka, mamma og pabbi og Gylfi Rúna stiðja mig svo eindreigið að þau splæsti bara í alvöru aukahlutum á gaurinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2007 | 18:31
Allt í klúðri í gær en ameríkusagan fer að koma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2007 | 22:01
Þetta eru sko vinir mínir
Þetta er Þorri, merkilegur drengur þarna á ferð með haug af hugmyndu sem því miður ekki er hægt að framkvæma. Hann þekkir aragrúfu af fólki og hefur kynnt mig fyrir fjölda mans og er ég í flestum tilvikum ánægður með þá. Eiður Þorri Þrastarson eins og hann heitir er fæddur 1982 og á litla stelpu sem heitir Aþena og er eitt af skemmtilegri börnum sem ég veit um. Þorri er verktaki með vinnuvélar og er harður samkeppni aðili minn. Hann er ný búinn að kaupa íbúð í sjálfum Hafnarfirði og fjölskylda hans er hreint æði. Stelpur, þessi gaur er á lausu.......................en þá
Svo kemur Gunni, Gunnar Guðjónsson sem er sá sem kynti mig fyrir Þorra er annar snillingur, veit ekki um mann sem er klárari í viðgerðum, það er alltaf hægt að laga svo hægt sé að nota það áfram. Gunni er verkstæðis maður hjá Vélfang og á enga óvini. Gunni er líka ný búinn að kaupa sér íbúð í hafnarfirði. Hann er með bíladellu dauðans og alltaf í stuði, fæddur 1981 og alltaf í stuði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.11.2007 | 15:24
S.O.S HJÁLP OG ALLT ÞAÐ
MIG VANTAR ÖLL SÍMANÚMER. SÍMANUM VAR STOLIÐ OG ÉG Á EINGIN NÚMER. PLÍS SENDIÐ MÉR NÚMERIN YKKAR OG NAFN, GET EKKI MUNAÐ ÖLL NÚMER
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)